|
|
10.07.2008 14:12:27 / galtagrin
Jæja lömb. Útilegan er að nálgast, á morgun réttara sagt ! Eruði ekki orðin spennt?  eeeen okei þeir sem ég held að séu að koma eru: Sigga niggah, Sóley, Fanney boobie, Ástík, Lárus rock, Eiki skurður, Nonni, Alli H, Dagur ruush, Kiddi, Júlli, Silla, Alli B, Bjarki, Andri 23, Eva Karen, Hanna Dís. Einhverjir fleiri? Endilega fleiri koma svo þetta geti verið almennilegt reunion!  En hverjir eru að fara á bíl? Eru allir pottþétt með far? Siggu bíll er fullur, og það er eitt laust pláss hjá mér (Sóley) og Evu í bílnum hennar Evu, en við leggjum örugglega af stað aðeins seint, svona um 10 leitið... Ef það þarf að plögga einhverju eða það eru einhverjar spurningar þá bara kommenta eða hringja í mig eða Siggu
»
06.07.2008 23:20:05 / galtagrin
Hæ krakkar mínir, Ákvað að nota gamla góða galtagrínið til að skipuleggja aðeins útileguna okkar betur. Við sendum flestum ykkar sms um þessa 90 árgangs útilegu en...vorum ekki með ´simanúmerin hjá öllum ykkar...sorry þaað  En sem sagt þá er þessi umtalaða útilega næstu helgi, ætlum á sama stað og í fyrra....í Hvammsvík í Hvalfirði. Minnir að þetta sé svona 40 mín. keyrsla úr Reykjavík. Asskoti sweet staður sko...nóg af skurðum og svona... En spurningin er eiginlega, eigum við að vera frá föstudegi til Laugardags eða Laugardegi til Sunnudags? Er nokkuð einhver sem vill vera báða dagana...er það ekki bara algjör þvæla? Endilega tjáið ykkur um þetta og reynið koma sem flest svo þetta verði ekki aftur einhverjir 5 krakkar eins og í fyrra hahaha  P.S, þegar þið mætið á tjaldsvæðið þá væri æðislegt að þið gætuð falið bíllyklana ykkar svo Eikiskurður missi sig ekki í gleðinni aftur
»
16.01.2008 23:18:00 / Fanney Prinsessa
Já, langt síðan ég hef bloggað hérna. Svosem nóg að segja frá. Jólafríið heima á klakanum var geðveikt. Sigga og Eyrún björguðu þessu eiginlega bara alveg, hehe. Mikið djammað mikið gaman mikið borðað. Jess. Nenni nú ekki að fara að segja frá því, enda löngu búið. Heyriði, ég fékk miða til Belgíu í póstinum í dag! mhm. Ég er að fara að heimsækja hana Dísu okkar. Ég er megaspennt akkúrat núna. Fer 1. feb og verð til 4. Svo fer ég til Ítalíu á skíði þann 9. til 16. Já, krakkar, lífið er erfitt. Æjj, vitiði, ég nennisuekki. Er farin að sofa.
»
02.01.2008 23:08:31 / Ásdís
gleðilegt nýtt ár elskurnar! í dag er ég búin að vera í Belgíu í 131 dag. meira en 4 mánuðir. shiii.. og ég get líka sagt ykkur að ég kem heim eftir 186 daga! ein sem er ekki að nenna að vera hér. nei bara grín samt. ég hlakka reyndar mjög mikið að vera árið 2008 hér í Belgíu. ég á von á geðveikt mikið af tónleikum, og betri en þeir sem hafa verið á undan. svo er bara pínu undir mánuður í að Fanney kemur til mín! svo náttúrulega kemur Villi líka líklegast og það eru bara allir að plana að heimsækja mig! víííí! en allavegana vil ég segja að 2008 verður snilldar ár. galtagrínið verður 3ja ára gamalt 3. júlí en ekki verð ég á ísl þá... neiiinei. en ástæðan fyrir því að þetta er afmælisdagur galtagrínsins sem bara því þá var fyrsta bloggið skrifað. ekki flóknara en það. ljúkum þessu með einhverri áramótamynd. jee.
»
25.12.2007 23:34:10 / Ásdís
já.. ég fann ekki upp á skemmtilegri titli en gleðileg jól á frönsku vei. Jólin í Belgíu voru drullu afslappandi og næs. gaan eitt skipti að losna við jólastressið, bara svona til að átta mig á því hvað ég elska það mikið ég var að henda inn jólakveðjum í 'æsifréttir' og náttúrulega ein öflug jólamynd í 'myndin valin' tékkiði á þessu! góður skítur! svo henti ég náttúrulega inn myndum af prófalokunum hjá mér. það var osum. vá hvað ég hef ekkert að blogga um! nema á morgun er ég að fara til Liège eins og alla miðvikudaga. svo eftir nokkra daga er bara nýja árið!  elska ykkur
»
24.12.2007 10:15:45 / galtagrin
Góðann daginn !  Hvernig er lífið? Vildi nú bara gera stutta bloggfærslu og óska ykkur allra Gleðilegra jóla...já ég veit að ég er rosa góð stelpa að gera það  Ennn....alla vega þið stelpur úti í geiminum einhversstaðar (Ásdís og Hallveig), hafið það ógeðslega gaman um jólin og munið að djamma feitt um áramótin...finni eitthvað betra ,,áramótapartý" en það sem við fórum í á seinasta gamlárskvöldi! Hehehe! En já ok, gleðileg jól allir og hey Fanney ég þarf að koma með pakkann þinn á eftir, vertu í bandi þegar þú vaknar einhverntímann  OK, BÆ
»
16.12.2007 20:40:16 / Ásdís
já hæ. ég fór á skauta. jee! með AFS chapterinum mínum sem var mega stuð! svo fór ég líka til Liège síðasta miðvikudag. sem var aðeins miklu meira stuð en á skautum. jeeeee! ekki mikið til að segja, ég er ekki viss um að þið viljið lesa um hvað gerðist og hvað ekki. fyrst enginn af ykkur þekkir þessa fólka ... vá hvað bloggin mín hljóta að vera spenandi fyrir ykkur. myndir!! Þetta mun vera Emma til vinstri sem er finnsk en þó sænsk í hjarta. henni þótti það alltof fyndið að ég kynni textann að botten anna utanað. það var drullugaman á þessum skautum. ég var ein af þeim fáum sem kunni á skauta. eins og sést á þessum myndum. Þessar myndir eru frá Liège. megastuð. fyrri myndin er af mér, John og einhverri annari gellu. John er snilldar gaur. seinni myndin er af gellu frá ástralíu sem er mega pal of mine en ég virðist bara ekkert muna hvað hún heitir. helvítis. Hresst í Liège á fyrri mynd. Ég og Ivan hressu á seinni mynd. það getur verið drullugaman að eyða mínum miðvikudögum í hrúgu af skiptinemum á þessum bar. já jólin koma. snjóar ekki. prófin að klárast. hlakka til áramótanna. elska ykkur.
»
14.12.2007 14:17:40 / Fanney Prinsessa
Ef að allt gengi alltaf eins og það á að gera, þá væri ég í flugvél núna. Eeeen, neibb. Sökum brjálaðs veðurs á klakanum er ég föst í London. Ég átti að fara með Icelandair vél, sem átti að lenda í London í morgun, en hún er ennþá heima, og á ekki að fara þaðan fyrr en í lang fyrsta lagi hálf fimm. Sem þýðir að ég fer aldrei héðan fyrr en níu, og er aldrei lent fyrr en á miðnætti. Kem væntanlega í bæinn í nótt einhverntímann, ef ég er heppin. Ef ég er ekki heppin er ég föst hérna þangað til á morgun. Já. Þannig að ég skellti mér bara að versla, haha. Maður bjargar sér Er samt svo eirðarlaus eitthvað, því ég er í raun bara að bíða eftir fréttum, sem koma ekki fyrr en hálf fimm. Jafnvel seinna. Klukkan er að verða hálf þrjú. Hvernig á ég að drepa tvo klukkutíma, hehe? Einhverjar uppástungur? Camden kanski bara, hmmmm. Krakkarnir eru samt fokk sáttir, enda fengu þau frí í skólanum því við áttum að fara héðan 10 í morgun. Bílstjórinn sem 'sótti' okkur er samt ekki jafn ánægður með þetta greyið. Held að ég hafi bara aldrei lent í svona töf. En já, er stuð í storminum? Ég var nú að heyra að þetta væri bara verra en þegar þakið fauk af heima, þannig að þetta hlýtur nú að vera ágætis rok. Já, endum þetta á vini mínum. 
Þessi er flottur.
»
05.12.2007 16:44:16 / Fanney Prinsessa
Já, heyrðu. Tími á blogggg. Svosem ekkert magnað að gerast hjá mér þessa dagana, eeen það eru níu dagar í að ég komi heim í jólafríííí! Jess kex. Reikna með góðu djammi í laugardagskvöldinu þann 15. des. Takkfyrir. Svo er jólaball kvennó 19. des og ég er að vona að hún Íris mín nái að kaupa miða fyrir mig  Annars ætla ég bara að hafa það geðveikt kósý þessar þrjár vikur sem ég verð heima. Ekkert vinnurugl eða þessháttar. Bara kúr undir sæng með litlu sys, jólamyndir í bíó og heitt kakó fyrir mig. Og svo auðvitað djamm. Jújú, má ekki gleyma því. Ah, svo er ég orðin sjúklega spennt fyrir febrúar! Ásdís; Ég er búin að panta miða í Eurostar lestina! Er að fara að heimsækja Steisuna í Belgíu 1. - 4. feb! YAY. Íslendinga-útlandadjamm JÁ. Fer svo líklega í skíðaferð eitthvert helgina þar eftir, þannig að lífið er gott. Mhm. Fór í enskupróf á mánudaginn uppí sendiráði. Enska 303, hélt að ég myndi fá hjartaáfall þegar konan rétti mér bókina sem hún kallaði próf. 20 bls. takk kærlega. Næææs. Var auðvitað ekki búin að lesa bókina sem ég átti að lesa, eins og mér einni sæmir, en ég googlaði hana og fékk þvílíkt nákvæmar niðurstöður á wikipedia, lýsingar á plotti, söguþræði, karakterum og öllu, þannig að ég var með'etta á hreinu Kláraði prófið á rétt rúmum klukkutíma og gekk út sátt. Vona bata að maður hafi náð, hehe. Frekar kjánalegt að falla í ensku þegar maður býr í London. Svo er ég að fara á skauta næstu helgi! Ah, long time no skate maður. Vona að ég verði ekki bara á rassinum allann tímann. Fór líka á íslenskt jólaball hérna um daginn, hehe. Allt helsta liðið mætt og þetta var bara ágætt. Vil enda þetta fína blogg með því að benda ykkur á síðuna freerice.com. Þetta er ss. síða þar sem maður á að smella á rétta samnefni (sp?) fyrir orð, og fyrir hvert rétt orð eru gefin 20 hrísgrjón til matvælahjálpar sameinuðuþjóðanna. Reglurnar eru allar þarna, þetta er ágætis skemmtun. Víkkið ensku orðaforðann ykkar og endið hungur í heiminum, allt í einum pakka! Jess. Ég er einmanna og er búin að ná í level 39. haha. Já, sé ykkur vonandi sem flest bráðlega. Allir að kíkja á kaffihús með Fanneyju í jólafríet! Fanney
»
03.12.2007 21:03:40 / Ásdís
hæ. ég byrja í prófum eftir eina viku. það er of fyndið... síðasta miðvikudag eftir skóla hoppaði ég uppí lest og til Liège.. þar tók Ivan á móti mér og kynnti mér fyrir 2 gaurum frá brasilíu og tyrklandi, ég hafði verið sitjandi 2 metru frá þeim í hálftíma bíðandi eftir Ivan hlustandi á þá tala ensku saman og drekkandi. mjög hneyksluð. við fórum ásamt grilljón öðrum krökkum frá Brasilíu á bar. þessi bar er einungis fyrir skiptinema. of margt fyndið gerðist þetta kvöld. ég skal segja það í punktum. - á ponsulitlum bar tókst rúmum 100 manns að troða sér inn.
- sunginn var brasilíski þjóðöngurinn.
- og líka brasilískt lag um að fara úr að ofan.
- það gerðu allir.
- ég verndaði ástralska stelpu frá pervert mikinn part af kvöldinu.
- skrifaði eitthvað á íslensku sem ég man ekki á baðherbergisvegginn.
- Ivan var slutta.
- eins og flest allir þarna.
- einhver gamall belgískur kall var virkilega týndur og passaði ekkert inní stemmninguna.
- sumir voru í kúrekaúningum.
- aðrir berir að ofan.
- mikill sviti.
- mikið gaman.
- fór á mcdonalds, án þess að éta.
þetta var of mikið fjör. og ég stefni þangað núna á miðvikudaginn aftur. á miðvikudaginn er líka verið að halda uppá St Nicolas. sem er ég veit ekki hvað. en allir verða crazy í skólanum og busa hvern annan. planið er víst að targeta mig í hel. helvíti. ég kveð að sinni með ELDgamalli mynd af mér. TAKK! hlæðu nú, ég veit að ég geri það
»
27.11.2007 18:45:35 / Fanney Prinsessa
tími á nýjan banner eðaaa? skella einni góðri inn fyrst maður er að þessu; 
»
25.11.2007 13:13:36 / Ásdís
sælar. þetta er fyrsta helgin sem ég geri ekki rassgat í belgíu. búið að vera mega næs helgi. á förudaginn illaði ég heima meðan Mélo var í leikhúsi með bekknum sínum og eftir það fórum við að fá okkur 'glas'. þetta var mjööög sterkt glas. það fyndnasta gerðist. við Mélo vorum að spjalla við vini hennar og svo þegar við vorum á leiðinni heim senti Aurelien vinur hennar henni sms um gemsann minn. ég sem hef aldrei talað við þennan gaur og hann á kærustu. kanski er hann bara að safna gemsanúmerum til að virðast vera vinsæll og þekkja marga. ég veit ekki. en á laugardaginn fórum við Mélo í klippingu og ég klippti mig aftur ótrúlega stutt.. hehe.. .úps. var eiginlega búin að lofa mömmu og SÉRSTAKLEGA villa að ekki klippa það né lita það en ég hlustaði ekki á þau. lagaði OF mikið í stutt hár aftur. svo um kvöldið fórum við Mélo og mamma hennar að taka til í kjallaranum. sem var of gaman. Mélo var að væla yfir því hvað allt væri ógeðslegt. og mamma hennar var að væla yfir því hvað hún nennti þessu ekki og hvað hún vildi geyma allt. henda engu. svo var ég bara með langt prik að enda á líkamsparta Mélo og segja hvað þeir hétu á frönsku. lærði að segja löpp, höndi, fingur, tær, auga og margt. næsta vika verður kanski meira spennandi. þá fer ég á miðvikudeginum til Liège að heimsækja Ivan og við ætlum að fara á skiptinemabarinn, því Ivan fann hann loksins. annars eru hlutir baramjög fyndnir og skemmtó hér í belgíu þessa dagana. máuður í jólin og mér líður eins og það sé bara ágúst. mhm, enginn snjór. fyrsta myndin sem var tekin af mér í belgíu. takk. Leo vildi að ég brosti og hann er svo rauðhærður að ég gat ekki nema brosið.
»
21.11.2007 17:07:35 / Fanney Prinsessa
Jæja, fyrst enginn er að blogga... nokkrar gamlar og góðar? Þið megið hata mig eins mikið og þið viljið!  
haha, geðveikur sakleysis-svipur á okkur öllum. jah, nema kanski mér. 
check it out. ástrós, runni og sóley gjells. 
mmmsnjór. andri og kobbi. (gjells)  játakk. afmæli hildar og siggu. 2006?
hahaha. 2001? silla fersk í morgunsárið.
eyrún var fokking hot, og þið vitð það. haha. 2001? 
takið eftir hvað kókið er skemmtilega glært.
hildur heit. bláfjöll.... 2005? 2006? 
sóleyhh! sóðabrók.
nilli, guðbjörg og heimir að fara á kostum. 
eiki er alltaf svalur. 
haha, 2002? yrsa og sigga geðveikar gellur.
hallveig í áttunda?
ásdís hefur breyst smá.
amma. haha
nei, þessi er bara of góð. sóley og hallveig. skrekkur í tíunda.
hleiðra.
mmmm... kalli. úff.
alli flottur á því. já... ok, gott í bili. en hey, á einhver myndirnar frá versló? sigga á og ásdís? mig langar í þær myndir. já... drulliði bara yfir mig núna..
»
13.11.2007 17:37:48 / Fanney Prinsessa
Fanney fersk á þriðjudegi. Eða ekki. Mamma og pabbs voru í London um helgina, partý. Já, lentu á föstudaginn og komu hingað og kíktu við. Svo héldum við út, fórum á Starbucks og löbbuðum á Abbey Road, þar sem foreldrarnir heimtuðu að vera túristar og láta taka mynd af sér að labba yfir gangbrautina. Jess. Svo fórum við bara í bæinn og fengum okkur að borða í Soho á einhverjum thailenskum fusion stað. Svo þurftu þau að sjálfsögðu að draga mig inn í Ann Summers. Við erum ekki að tala um high street Ann Summers búð, heldur Soho útgáfuna. Mamma átti góða syrpu þar inni... 'Bíddu, ertu að segja að ég væri ekki flott í svona hjúkkubúning?' 'Nei, sjáiði typpatannburstann!' og að ógleymdu 'Fanney, þú ættir nú að fá þér svona handjárn...'. Já, mamma og pabbi eru heilbrigðar og góðar fyrirmyndir. Svo á laugardaginn fór ég á Jose Vanders show. Ah, ást. myspace.com/vandersmusic fyrir þá sem ekki vita. Spjallaði aðeins við hana, og hún sagði að hreimurinn minn væri krúttlegur. Awww... Ætla svo að sjá hana spila aftur. Svo fórum við aftur út að borða, en í þetta skiptið með John og Terry, vinafólki mömmu og pabba sem við kynntumst í Róm. Terry er áströlsk og John er frá Nýja Sjálandi. Þið sem hafið hitt pabba minn getið ýmindað ykkur hvernig vinir hans eru... John er án gríns bara ýktari útgáfa af pabba. Fórum á Café Pacifico, stað í Covent garden. Þar voru sagðir þónokkrir ósmekklegir brandarar, og Terry ráðlagði mér að giftast Breta, þar sem nýsjálenskir og íslenskir menn væru augljóslega ekki málið. Ég var persónulega bara fegin að enginn múnaði þjóninn. Af Pacifico var farið á nokkra pöbba. Aftur eru foreldrarnir fyrirmyndir. Sátum einmitt þarna á einhverjum stað og fólkið á næsta borði bað okkur að passa sætin á meðan það færi að reykja. Jájá, ekkert mál auðvitað. Nema svo kemur einn gaurinn aftur og sest eftir smá, maður sem við vorum alveg búin að tala við, og mamma snýr sér að honum og bara 'Heyrðu, þetta sæti er frátekið' og gaurinn svarar náttúrulega 'Já, ég veit, ég var að tala við þig fyrir svona tveimur mínútum'. Mamma alveg í kleinu og gaurinn í kasti og lagði til að mamma gerðist dyravörður, því hann hefði bara verið hálf hræddur. Já, svo tók mamma nokkur góð spor. Ég er ekki frá því að DJinn hafi bara verið svoldið skotinn í henni, haha. Mamma gjéllz. Svo á sunnudaginn fórum við í hádegismat með Birgi og Silju. Sátum í marga klukkutíma, og vorum en lengur heim þar sem Biggi og pabbi fundu ástæður til að stoppa á svona átta pöbbum á leiðinni. Til fyrirmyndar enn og aftur. Enduðum svo í Camden á Kúbönskum pöbb þar, geðveikur staður með svona live tónlist og fullum latinos að reyna að kyssa barþjóna. Löbbuðum um stables market og kíktum í Cyberdog. Besta búð í heimi. Ef þið komið til London any time soon þá ætla ég að sýna ykkur Camden. Mér er sama hver þú ert, Camden er kúl. Já, ætla ekki að fara nánar út í þetta. Mamma og pabbi fóru með kvöldvélinni í gær og ég hef haldið mig frá pöbbunum síðan. Einnig hef ég haldið mig frá kynlífsverslunum. Aðallega vegna flensu, reyndar.
»
11.11.2007 13:26:52 / Ásdís
you know the rest. ì gaer fòr ég à tònleika. en byrjum à föstudeginum! eftir skòla(sem endadi mér til skemmtunar klukkutìma fyrr en vanalega) hékk ég à Télé til klukkan 6 med téléfòlki. thà fòrum vid Mélo og Jolan à La Péniche, sem er semsagt thessi lounge boat thar sem madur kaupir sér risa kokteila=) ég keypti mér (og Mélo lìka) Kama-Sutra sem var of gott og vid illudum thar i einhvern tìma og fòrum svo heim ad lùlla okkur. thvì laugardagurinn var framundan. og vid vildum ekki vera threytt à Mass Hysteria.. neineinei! à Laugardaginn vaknadi ég og fòr til Liège med host foreldrum mìnum à eitthvad AFS dòt. mjöööög gaman thad. thvì guide'inn okkar var OF fyndinn. var allann tìmann ad hanga med Kristina og Emma enda nennti enginn ad hanga med host foreldrum=/.. svo klukkan 7 thà skutladi host pabbi okkur Mélo à Télé og vid bidum og bidum thar eftir Pauline og fòrum med henni og Mirra, Jolan og einhverjum 2 ödrum gaurum à La Péniche AFTUR! thar fékk ég mér aftur Kama-Sutra og jà stud thad. svo fòrum vid à Télé à tònleikana og thad var stud, FYRIR UTAN thad ad mer tòkst ad meida mig SVO OFT tharnahelvìtis!! fyrst lenti ég ì smà slag vid Aubry thvì hann var ad vera perri og mér tòkst ad sparka ì sköflunginn à honum med mìnum eigin. svo ài. svo seinna um kvöldid var ég ì gannislag med Denis og honum tòkst ad skalla mig FEITAST ì nefid!! aftur ài. svo vorum vid eitthvad ad pogoast tharna og ég fékk fòtinn à Benji ì haegri hlidina à andlitinu mìnu og öxlina à einhverjum gaur ì vinstri hlidina. meira ài. en gott màl. ég er vìkingur svo ég höndladi thetta. (alltaf ad tala um hvad ég er mikill vìkingur hérna) =)=) svo eftir tònleikana höfdum vid Mélo og Jolan og Morgan ennthà klukkutìma thangad til ad vid turftum ad fara heim svo vid fòrum helvìtis AFTUR à La Péniche=)..!! thà fékk ég mér Barbare. sem er OF gott!!! aaahhhh..!! fokking! svo fòr ég heim ad lùlla. naestu helgi kemur Ivan ì heimsòkn til mìn og vid aetlum med Mélo à skauta, audvitad La Péniche og eitthvad flipp. gaman?
»
Síður: 1 2 3 ... 24
|
|